Reimar Pétursson er einn stofnenda LLG Lögmanna (upphaflega Lögmenn Lækjargötu) og hefur verið í eigendahópi fyrirtækisins frá upphafi. Áður var Reimar m.a. starfandi lögmaður hjá Nestor lögmönnum á árunum 1998-2004, lögfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Atorku hf. á árunum 2005-2007 og lögfræðingur hjá Straumi – Burðarás fjárfestingarbanka hf. frá 2007-2008. Þá var Reimar lögfræðilegur ráðgjafi fyrir Hf. Eimskipafélag Íslands og Cube Properties á árunum 2008-2011 áður en hann gekk til liðs við LLG Lögmenn. Reimar var formaður Lögmannafélags Íslands frá 2015-2018.
Aftur á forsíðu