Almenn fyrirtækjaráðgjöf

Almenn fyrirtækjaráðgjöf
Ríkur þáttur í starfsemi Lögmanna Lækjargötu er hvers kyns lögfræðiþjónusta og ráðgjöf til fyrirtækja, innlendra sem erlendra, sem starfa í íslensku viðskiptalífi, þ.m.t. sem varðar:

• Starfsemi hlutafélaga, þ.m.t. stofnun þeirra, almenn starfsemi og slit, stjórnun og skipulagning hluthafafunda, ráðgjöf um stjórnarhætti o.fl.
• Fjármögnun fyrirtækja og lánastarfsemi, s.s. um uppbyggingu fjármögnunar, lánveitingar og lántökur, útgáfu skuldabréfa (þ.m.t. á skipulögðum verðbréfamarkaði), veðsetningu, veðtöku og veðgæslu og allrar skjalagerðar sem tengist framangreindu.
• Samningagerð, þ.m.t. samninga um kaup og sölu fyrirtækja, vöru, þjónustu eða eigna, samninga við starfsmenn o.fl.
• Samskipti við stjórnvöld, þ.m.t. erindis- og málarekstur hjá stjórnsýslustofnunum og úrskurðarnefndum.